Mismunur á fátækum og ríkum | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Mismunur á fátækum og ríkum

Fyrsta ljóðlína:Þó fátækan prest að byggðum beri
bls.88-91
Viðm.ártal:≈ 1825
1.
Þó fátækan prest að byggðum beri
og beðna gistingu fái hann
allir nóg honum una af þéri
og allir kalli hann góðan mann
eitthvað er samt við eðli hans
er ei krefur rétta virðing manns.
2.
Honum er sýndur borða beini
blátt áfram lagað hvílurúm
sagt hér að hvíla sig hann reyni
svo honum ekki leiðist húm
hann fer að borða og hvíla sig
hugrór við atlot mannúðlig.
3.
Nú ber að ríkisbubba síðan
er reynt lét sér eitt sinn verða kennt.
allir hlaupa strax út að þýða hann
með óskapa fumi og komplíment.
Ó hvílík æru og auðgin stund
yðar í kveld að líta fund.
17.
Þeir héldu þetta væri vofa
og vöfðu sig fötunum í
ríki fræðarinn fór að sofa
furðaði mig á víti því.
Lesari góður líttu á minn
líka sérðu hér mismuninn.