Vorhret | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Vorhret

Fyrsta ljóðlína:Stjórnar þú þessu, góði Guð?
bls.62
Viðm.ártal:≈ 1950
Flokkur:Skáldsþankar

Skýringar

1. Stjórnar þú þessu, góði Guð?
Gerirðu þenna ófögnuð
að fylla heiminn með frosti og hríð?
Finnst þér þetta´ ekki bölvuð tíð
í maí?
2. Manstu eftir litlu lömbunum
léttstígu kátu fuglunum
og blessuðum ungu blómunum
og börnum sem elska vorið
í maí?