Minningar – Undir nafni Ásgeirs Jónssonar frá Gottorp | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Minningar – Undir nafni Ásgeirs Jónssonar frá Gottorp

Fyrsta ljóðlína:Mitt lífsstarf liggur að baki
bls.205-206
Viðm.ártal:≈ 1950
Flokkur:Eftirmæli
1.
Mitt lífsstarf liggur að baki
í litlum búnaðarreit
með Hópin til beggja handa
í hlýlegri dalasveit.
2.
Ég nauðugur fluttist frá því
sem fyrr var mín iðjugrein.
Borgarlífs gegnum glauminn
glampar minningin ein.
3.
Eg átti þar unaðsstundir
einnig á móti blés.
Hugur langvegu leitar
léttir við Skollanes.
4.
Þar er sú taug, sem mig tengir
traustast við liðin ár.
Á austasta hólnum við Hópið
er hestur með luktar brár.
5.
Eg lít yfir kumlið hans lága
og lund mín er bljúg og klökk.
Glófexta vininn minn vef eg
í verðskuldað lof og þökk.
6.
Hann er mitt augnayndi
ævinnar heiðursgjöf.
Frá leiði hans sést yfir landið
sem lykur um föður míns gröf.
7.
Þar vil eg síðast sofna
er sólin í austri rís.
Ef örlögin ósk mína heyra
þar yrði mín Paradís.