Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
SöfnÍslenskaÍslenska |
Flokkar
Allt (1291)
Afmæliskvæði (11)
Ástarljóð (10)
Baráttukvæði (3)
barnagælur (1)
Biblíuljóð (3)
Brúðkaupsljóð (1)
Daglegt amstur (8)
Eftirmæli (13)
Ferðavísur (3)
Formannavísur (1)
Fræðsluljóð (1)
Gamankvæði (18)
Háðkvæði (8)
Hátíðaljóð (2)
Heilræði (1)
Hestavísur (2)
Hindisvík (2)
Holtavörðuheiði (3)
Húnaþing (8)
Húnvetningar (7)
Hyllingarkvæði (4)
Jóðmæli (1)
Jólaljóð (3)
Kappakvæði (1)
Lífsspeki (2)
Ljóðabréf (6)
Náttúruljóð (48)
Oddi (1)
Rímur (1)
Sagnakvæði (1)
Sálmar (2)
Sálmur (2)
Skáldsþankar (44)
Strandir (2)
Söguljóð (11)
Söngvamál (1)
Tíðavísur (1)
Tregaljóð (4)
Þululjóð (1)
Ættjarðarkvæði (15)
Ævikvæði (2)
Ósamstæðar vísur – gerðar 1946Fyrsta ljóðlína:Einyrkjanna önn og strit
Viðm.ártal:≈ 1950
1. Einyrkjanna önn og striteinatt bannar snilli. Fjáreign manna fyrr en vit fær því grannans hylli.
2. Þeir sem dýrka Mammon mestmargir hljóta völdin ekki þeim sem allra verst eru syndagjöldin.
3. Þögn er talin gulls ígildigasprið er þó fleirum tamt. Athugað er ei sem skyldi að oft er betra að þegja samt.
4. Þó er gott að tala í tímatraust ef máli fylgja gögn en við lífsins gátur glíma gengur oftast best í þögn.
5. Ámælið er ýmsum tamtyfir mörgu klagað. Þótt mér sé í geði gramt get ég stundum þagað.
6. Ekkert breytist aldafarenn er hugsun mögur. – ganga um sveitir ginnkeyptar Gróu-Leitis-sögur.
7. Þó að málin þyki vöndþetta yfir fyrnist ef að fæst í aðra hönd eitthvað sem þú girnist.
8. Af því hreina yndið brástað á leynifundum sundur greina girnd og ást gott ei reynist stundum.
9. Þegar fæ eg fornar myndirframkallað í huga mér gægjast með þeim gamlar syndir – gamanið þá búið er.
10. Þótt eg eyði ársins hringæsku fjarri slóðum horfi eg á Húnaþing hugaraugum glöðum. |