Húnaþing | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Húnaþing

Fyrsta ljóðlína:Það ómar ljúft frá liðnum dögum
bls.197
Viðm.ártal:≈ 1975
1.
Það ómar ljúft frá liðnum dögum
og löngum vakna minningar
því fegurst voru fjöllin heima
og friður einatt ríkir þar.
2.
Við ljúfa söngva og sumarangan
er sólin vermdi kvöldin löng
við auga litum álfa og dísir
er okkur hurfu í klettaþröng.
3.
Þú brást ei vonum, vornótt bjarta
er vakti kyrrð um lágnættið.
Þá gladdist ungt og óspillt hjarta
og undi ljúfa drauma við.
4.
Og hérna gerðist Grettis saga –
við grétum forðum örlög hans.
Og fljóðin Ingólf ennþá muna
og örlög fríða Hofsverjans.
5.
Já, fornar slóðir frægðir geyma
þó fátt sé rætt um klausturstarf.
Því helgir menn hér handrit skráðu.
Við hlutum þeirra strit í arf.
6.
Við geymum vor í hugarheimi
þó hausti og fölni gras og lyng.
Við sendum kæra kveðju norður
og klökk við blessum Húnaþing.


Athugagreinar