Á heimaslóðum | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Á heimaslóðum

Fyrsta ljóðlína:Ennþá finn ég fagran dal
bls.1956 bls. 79
Viðm.ártal:≈ 1950
Flokkur:Tregaljóð

Skýringar

Þessar vísur eru ortar í Svartárdal árið 1953
1.
Ennþá finn ég fagran dal
fækka kynningarnar. –
Hugans inni´ í hljóðum sal
hreyfast minningarnar.
2.
Hér ánægja lífs var léð
lækurinn hægir sönginn.
Aldrei fæ ég framar séð
fornu bæjargöngin.
3.
Eyðing hylur úfinn svörð
aftur skilar fáu.
Feigðarbylur beygði að jörð
bæjarþilin háu.
4.
Gömlu þreyðu göturnar
glumdu á reiðarfundum.
Á vega greiðum grundum var
gripið skeiðið stundum.
5.
Gæðings kynið hugann hreif
hófadynur steininn.
Um þessa vini á víð og dreif
vitna skinin beinin.
6.
Breyting skjót sem orðin er
öll til bóta standi
á æskumót ei aftur fer
orðinn fótgangandi.
7.
Tískuvöldin vekja hryggð
verða útgjöld að meini.
Nýja öldin öll er byggð
upp af köldum steini.
8.
Gæfuvalið var hér dreymt
vaknar halur sofinn.
Lækjahjal í hlíðum gleymt
horfinn smalakofinn.
9.
Dagsins glóðin dvína fer
dimma óðum tekur.
Föður- og móðurminning hér
moldin hljóða vekur.
10.
Minning hlý sem hulin er
hjartans drýgir sjóðinn.
Gegnum skýin greini eg hér
gamla og nýja móðinn.