Lokavers | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Lokavers

Fyrsta ljóðlína:Við brottför þína brugðu fjöllin lit
Höfundur:Hermann Pálsson
bls.127
Viðm.ártal:≈ 1950
Flokkur:Tregaljóð
Við brottför þína brugðu fjöllin lit
og blámi himins varð að mistri gráu
en ilmur hvarf að grænni smáragrund
því aldrei framar fer ég þín á vit
í fremsta hvamminn, þar sem blómin smáu
þoldu önn við okkar fyrsta fund.


Athugagreinar

Fyrr í ritinu nefnir höfundur gjarnan staði þar sem hann fær ljóð til þýðingar á íslensku, en formálinn að lokaversinu er meira afsakandi. Hermann segir: Þættirnir og þýðingarnar eru tíndar saman af lausum blöðum, sem liggja í hrúgu á illa hirtu skrifborði. Á einum miða verður fyrir mér vísutetur og er það lokavers þessarar bókar.