Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
SöfnÍslenskaÍslenska |
Flokkar
Allt (1291)
Afmæliskvæði (11)
Ástarljóð (10)
Baráttukvæði (3)
barnagælur (1)
Biblíuljóð (3)
Brúðkaupsljóð (1)
Daglegt amstur (8)
Eftirmæli (13)
Ferðavísur (3)
Formannavísur (1)
Fræðsluljóð (1)
Gamankvæði (18)
Háðkvæði (8)
Hátíðaljóð (2)
Heilræði (1)
Hestavísur (2)
Hindisvík (2)
Holtavörðuheiði (3)
Húnaþing (8)
Húnvetningar (7)
Hyllingarkvæði (4)
Jóðmæli (1)
Jólaljóð (3)
Kappakvæði (1)
Lífsspeki (2)
Ljóðabréf (6)
Náttúruljóð (48)
Oddi (1)
Rímur (1)
Sagnakvæði (1)
Sálmar (2)
Sálmur (2)
Skáldsþankar (44)
Strandir (2)
Söguljóð (11)
Söngvamál (1)
Tíðavísur (1)
Tregaljóð (4)
Þululjóð (1)
Ættjarðarkvæði (15)
Ævikvæði (2)
ÍslandFyrsta ljóðlína:Hvar ljóma skýin með himinfegri sjón?
Höfundur:Benedikt Gröndal Sveinbjarnarson
Viðm.ártal:≈ 1875
Flokkur:Ættjarðarkvæði
1. Hvar ljóma skýin með himinfegri sjón?Er heiðríkjan annarstaðar meiri en um Frón? Og hvar segja bárurnar betur því frá sem bar við um heiminn og gleymast ei má?
2. Hvar þylja fossarnir fegurri ljóð?Og hvar sveifla norðurljósin bjartari glóð en þar sem Saga hjá Sigföður skín og syngur í gullskálum aldanna vín?
3. Hvar er fegra grasið á grænkandi reit?Og hvar stígur gufan úr jörðunni heit megnar og tignar en Geysis í glaum, glampandi kristall af undirheims draum?
4. Þó örvænti margir og uppgefnir séog Ameríku þylji um gnóttir og fé – hver vill því skeyta og skapa sér tár og skera úr sér hjartað sem sló í þúsund ár?
5. Því vort ertu, Ísland, og verður um öld,því vakir sá gamli um morgun og kvöld; og feðurnir gömlu þig gáfu oss víst og grafkyrrt þú verður hvað sem agentum líst.
6. Meðan fossinn er hvítur og fjöllin eru blá,meðan faldar á jöklunum skínandi gljá, meðan sumar og vetur fá svifið um ský: Þú, snjómey, ert jafnfögur hjörtunum í.
7. Þó framtak og dugnaður felist oss enní fjalldölum búa og trúa því menn að enn komi tíð eftir eymdanna stund og eitthvað flytji sólin í gulllegri mund.
8. Hér var ég fæddur og hér skal mitt líkhvíla í mold undir kistunnar brík, hér bjuggu faðir og móðir og mey og mín er þessi jörð hvort ég lifi eða dey. |