„Sigrúnarljóð“; | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

„Sigrúnarljóð“;

Fyrsta ljóðlína:Nú vil ég, Sigrún mín, sýna á því lit
bls.140
Viðm.ártal:≈ 1925
Flokkur:Gamankvæði
1.
Nú vil ég, Sigrún mín, sýna á því lit
að sanna, hvað þú ert mér góð;
í kvöldrökkursþögninni kaldur ég sit
og kveð um þig „Sigrúnarljóð“.
Og ég er nú ríkari en ég var í gær
því ég á mér unnustu nú
og myndin er fögur og mér er hún kær
því myndin er rétt eins og þú.
2.
Að skrifa þér, Sigrún, er skemmtilegt verk
það skaðar ei neinn, að ég held.
Ég þori að ábyrgjast, það hefði frést
ef þú værir lofuð og seld.
Og það er mér unun að þekkja þig nú,
því þú ert svo gáfuð og stillt.
Ef ég væri ungur, já eins og ég var
þá ættir þú, Sigrún mín, pilt.


Athugagreinar

Þakkað fyrir mynd.