Útfararminning | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Útfararminning

Fyrsta ljóðlína:Eg þó um Ingigerði
bls.55-56
Viðm.ártal:≈ 1725
1.
Eg þó um Ingigerði
efnaði lítinn brag
samt trúi eg varla verði
vandað mjög sálmalag.
Lifrar og lýsið bræddi
löngum það sauð og át
á skötum fólkið fæddi
svo flest var komið í mát.
2.
Arma útróðrardrengi
agtaði lítils hún
fúkyrðin faldi ei lengi
framgekk með síða brún.
Fisk bæði flatti og slægði
fleygði sem óð og ær
stytti sig nóg sem nægði
nett upp á þvykkvalær.
3.
Fullvaninn fjörusulli
fannst henni engin lík
í því andskotans bulli
útklíndi hverja flík.
Lítilsvert lofið hreppti
löðrandi öll í grút.
Lungnasótt loks að kreppti
leið þannin ævin út.


Athugagreinar

Höfundur orti þessa útfararminningu um konu sem Ingigerður hét.