Íþróttir | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Íþróttir

Fyrsta ljóðlína:Snjór til foldar fellur
bls.29-30
Viðm.ártal:≈ 1950
1.
Snjór til foldar fellur
frostin koma á ný
drengur á skautum skellur
skemmtun er að því.
Hátt í Hlíðarfjalli
heldur æskan sig
flýg ég stall af stalli
stöðugt æfi mig.
2.
Spjóti og kringlu kasta
knetti spyrna hátt
ljótu orðin lasta
leika mér svo dátt.
Virða minnar móður
mold og feðrabyggð
göfga sálargróður
glæða hverja dyggð.