Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
SöfnÍslenskaÍslenska |
Flokkar
Allt (1291)
Afmæliskvæði (11)
Ástarljóð (10)
Baráttukvæði (3)
barnagælur (1)
Biblíuljóð (3)
Brúðkaupsljóð (1)
Daglegt amstur (8)
Eftirmæli (13)
Ferðavísur (3)
Formannavísur (1)
Fræðsluljóð (1)
Gamankvæði (18)
Háðkvæði (8)
Hátíðaljóð (2)
Heilræði (1)
Hestavísur (2)
Hindisvík (2)
Holtavörðuheiði (3)
Húnaþing (8)
Húnvetningar (7)
Hyllingarkvæði (4)
Jóðmæli (1)
Jólaljóð (3)
Kappakvæði (1)
Lífsspeki (2)
Ljóðabréf (6)
Náttúruljóð (48)
Oddi (1)
Rímur (1)
Sagnakvæði (1)
Sálmar (2)
Sálmur (2)
Skáldsþankar (44)
Strandir (2)
Söguljóð (11)
Söngvamál (1)
Tíðavísur (1)
Tregaljóð (4)
Þululjóð (1)
Ættjarðarkvæði (15)
Ævikvæði (2)
Eftir óþurrkasumariðFyrsta ljóðlína:Köld og vot er okkar eyja
Höfundur:Sigurður Norland, Hindisvík
Heimild:Nokkur kvæði og vísur. bls.25-26
Viðm.ártal:≈ 1950
1. Köld og vot er okkar eyjaen um landsmál þó annað verra er að segja allt í grænum sjó. Óstjórn þessu öllu veldur ýmsir gefa í skyn. Það er ofstjórn öllu heldur ennþá verri en hin,
2. Undir lögmáls ok er bundinathöfn manna flest, líka verða lokuð sundin landi að vinna best líkt og sabbats boð og bönnin bægðu forðum lýð gott að vinna, öll var unnin uppfyllt lagasmíð.
3. Nauðsyn ill er orsök laga,en að hefta störf ár og síð og alla daga engin gerist þörf. Eins og lög hjá deigum draga dáð úr andagift verða störf und verði laga víða aktaskrift.
4. Hygg ég frelsi miklu meiramætti vera hér lögin bjóði og banni fleira beint en nauðsyn er. Þó að öðrum þjóðum helsi þyki gott og tryggt, minnumst þess að fyrir frelsi fyrst var Ísland byggt. |