Palladómar um nokkrar stéttir | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Palladómar um nokkrar stéttir

Fyrsta ljóðlína:Enn skal glettur byrja brags
Heimild:Andstæður.
bls.104-107
Viðm.ártal:≈ 1950
Flokkur:Háðkvæði
1.
Enn skal glettur byrja brags
bera út frétt án eigin hags
ríma slétt og leita lags
lýsa stéttum þjóðfélags.
2.
Ljót er gáfan læknanna,
limi flá og afskera,
taxtann háa tvöfalda
til að ná í peninga.
3.
Prestar klifa í kirkjunni
kristni þrifum eyðandi
sífellt skrifa um siðfræði;
sjálfir lifa á hræsninni.
4.
Dafna í klækjum dómarar
dansa á hækjum forsmánar
margar krækja múturnar
málaflækju svindlarar.
5.
Rósemd skerða ritstjórar
rita ferðugt skammirnar
huldir gerðum háðungar
höfuðverðir lyginnar.
6.
Rándýrsfingur ráðherra
rétta á þingi bitlinga
þeim er syngja og samþykkja
sjóðreikninga falsaða.
7.
Þingmenn heyja þræturnar
þunnar teygja ræðurnar
sóma fleygja í sölurnar
sér til eigin framdráttar.
8.
Þokkaseinir þófarar
þiggja bein og skófirnar
böðuls treinar brellurnar
bletta hreinu voðirnar.
9.
Kaupmenn rata á klækjaþing
kúga og plata almenning
klæða úr fati fáráðling
fá sinn mat með svívirðing.
10.
Búðarþjóna þýlynd stétt
þróar dónasvörin grett
fyrir krónu fremja prett
fá á slóna svartan blett.
11.
Launbrögð þreyta lyfsalar
lýðsins neyta heimskunnar
lifa af sveita samtíðar
sannir eiturbyrlarar.
12.
Smiðir lifa á smekkleysi
smátt til þrifa vinnandi
kítti í rifur klínandi
klambrið yfir breiðandi.
13.
Krakka flengja kennarar
kitla strengi óþurftar
horfnir gengi hugkvæmdar
hrokafengnir loddarar.
14.
Vegi bæla bílstjórar
bænda fæla trunturnar
bensínsvælusafnarar
svartra þræla jafningjar.
15.
Verkalatir vinnumenn
vilja bata og hvíld í senn
þessir snatar þekkjast enn
þiggja mat og launin tvenn.
16.
Vinnukonu væflurnar
við margskonar hörmungar
þreyja að vonum þunglyndar
þær eru svona fordæmdar.
17.
Piparmeyja skorpin skinn
skjögta um vegi grátbólgin
lítil eygja úrræðin
öfugt teygja lífsþráðinn.
18.
Piparsveina svekkist lund
svanna einatt þreyja fund
aldrei greina glaða stund
glatað reynist þeirra pund
19.
Bændur líða blíðurán
bognir stríða gleði án
þeirra bíður þreföld smán:
Þræla, skríða og biðja um lán.
20.
Konur skreiðast kjökrandi
kostum neyðar aukandi
svalla og eyða í óhófi
opna leið að húsgangi.
21.
Skáld sig baða í skranpolli
skjall og smjaður syngjandi
hunds á vaði hlaupandi
hábölvað með kjaftæði.
22.
Heimasætur hárskornar
hoppa um stræti skrautbúnar
engan græta ástríkar
eftirlætisskepnurnar.