Ávarp | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Ávarp

Fyrsta ljóðlína:Mín eru ljóð ei merkileg
Heimild:Kviðlingar.
bls.1
Viðm.ártal:≈ 1925
1.
Mín eru ljóð ei merkileg
mínir kæru vinir!
en oft og tíðum yrki´ eg
öðruvísi´ en hinir.
2.
Veit eg ljóðin varla mín
verða kviðfyllandi;
og kannski þjóðin kostafín
kalli þau siðspillandi.