Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
SöfnÍslenskaÍslenska |
Flokkar
Allt (1291)
Afmæliskvæði (11)
Ástarljóð (10)
Baráttukvæði (3)
barnagælur (1)
Biblíuljóð (3)
Brúðkaupsljóð (1)
Daglegt amstur (8)
Eftirmæli (13)
Ferðavísur (3)
Formannavísur (1)
Fræðsluljóð (1)
Gamankvæði (18)
Háðkvæði (8)
Hátíðaljóð (2)
Heilræði (1)
Hestavísur (2)
Hindisvík (2)
Holtavörðuheiði (3)
Húnaþing (8)
Húnvetningar (7)
Hyllingarkvæði (4)
Jóðmæli (1)
Jólaljóð (3)
Kappakvæði (1)
Lífsspeki (2)
Ljóðabréf (6)
Náttúruljóð (48)
Oddi (1)
Rímur (1)
Sagnakvæði (1)
Sálmar (2)
Sálmur (2)
Skáldsþankar (44)
Strandir (2)
Söguljóð (11)
Söngvamál (1)
Tíðavísur (1)
Tregaljóð (4)
Þululjóð (1)
Ættjarðarkvæði (15)
Ævikvæði (2)
Inn HúnaflóaFyrsta ljóðlína:Nú beygir fleyið fyrir Horn
Höfundur:Sigurður Norland, Hindisvík
Heimild:Nokkur kvæði og vísur. bls.96-97
Viðm.ártal:≈ 1950
Flokkur:Hindisvík
Skýringar
við förum bauginn . . . = Norðurskautsbaug
1. Nú beygir fleyið fyrir Horn,við förum bauginn stundarkorn en brátt er land á bak og stjór og blikar sléttur sjór. Hér Reykjahyrnu syðsta sér, í sama miðið fjöllin ber er hér um flóann halda vörð þau Horn og Drangaskörð. Við könnumst nú við Geirólfsgnúp er gengur fram við Strandadjúp. Af Drangajökli birtu ber sá bjarmi líkur gulli er og sveit er dýr á sumri hýr en samt hér enginn býr.
2. Nú strik er sett og stefna beinvið stýrum djúpt af Gjögurshlein nær miðjum flóa móti sól á miðum fljóta ból. En sjómenn kátir koma heim og konur ungar fagna þeim. Um nes og vík og Bala bær er byggður fjær og nær, í grimmum dal með galdrana á grundunum úti á Kaldrana og eins og saga innir forn við Ennisstiga og Kaldbakshorn, und felli há og hyrnu blá má húsabæi sjá.
3. Þó víða ennþá vatni lönd,af víði rís hin lága strönd hjá Hindisvík og Vatnsnestá og Vitanes þar hjá. Þar höfn er fyrir Húnaþing, er hefur fagra innsigling, til vinstri handar hamrabrún á hina gróin tún og úti fyrir eyjar, sund en inn af vogi sand og grund og vötn og sléttur víðlendar hjá Víkurnúp, er starir þar við heiðið hátt á landið lágt og lagardjúpið blátt. Athugagreinar
Lag: Kátur bóndi eftir Schumann
|