Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
Vorvísur | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Flokkar

Allt  (1291)
Afmæliskvæði  (11)
Ástarljóð  (10)
barnagælur  (1)
Biblíuljóð  (3)
Eftirmæli  (13)
Ferðavísur  (3)
Gamankvæði  (18)
Háðkvæði  (8)
Heilræði  (1)
Hestavísur  (2)
Hindisvík  (2)
Húnaþing  (8)
Húnvetningar  (7)
Jóðmæli  (1)
Jólaljóð  (3)
Kappakvæði  (1)
Lífsspeki  (2)
Ljóðabréf  (6)
Náttúruljóð  (48)
Oddi  (1)
Rímur  (1)
Sagnakvæði  (1)
Sálmar  (2)
Sálmur  (2)
Skáldsþankar  (44)
Strandir  (2)
Söguljóð  (11)
Söngvamál  (1)
Tíðavísur  (1)
Tregaljóð  (4)
Þululjóð  (1)
Ævikvæði  (2)

Vorvísur

Fyrsta ljóðlína:Eftir vetrar unna þraut
bls.2. ár, önnur útg. bls. 46
Viðm.ártal:≈ 1950
1.
Eftir vetrar unna þraut
anga blóm á vori.
Breiða sig um brekku og laut
bros í hverju spori.
2.
Sunnan vinda sjóli snjall
sendir blæ um dalinn.
Verma geislar fanna fjall,
frerar hníga í valinn.
3.
Undirleik við suðra söng
semja kátir lækir.
Knýjast fram úr klettaþröng,
kviklátir og sprækir.
4.
Sólin hefir lönd og leið
látið myrkrið flýja.
Norðurheima hún um skeið
hyggst að endurnýja.
5.
Vakir loftsins vængjuð hjörð
vermd af sólareldi.
Þúsund radda þakkargjörð,
þylur allt að kveldi.
6.
Grænka rindar, gróa sund,
gleðin hrindir trega.
Vekur strindi, vermir lund
vorið yndislega.