Sálmur 525 | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Sálmur 525

Fyrsta ljóðlína:Til þín, Drottinn hnatta og heima
Viðm.ártal:≈ 1950
1.
Til þín, Drottinn hnatta og heima,
hljómar bæn um frið.
Veittu hrjáðum, hrelldum lýðum
hjálp í nauðum, sekum grið.
Þegar skjálfa skorðuð fjöllin,
skeika flest hin dýpstu ráð,
lát oss veika fá að finna
fasta bjargið, þína náð.
2.
Mara kvíðans mannkyn treður,
mætt af þungri synd.
Þjökuð veröld velkist milli
vöku og svefns með augu blind.
Lát hinn mikla lúður gjalla,
leiftur sundra þokuhjúp,
geisla þinnar sannleikssólar
sindra um myrkvuð hugardjúp.
3.
Bjartir englar betri heima,
biðjið fyrir oss.
Þú, sem fyrir þjáða bræður
þyrnikrýndur barst þinn kross,
lát oss við hann fá og finna
friðarathvarf, líknarskjól.
Miskunn veit oss, mönnum sekum,
mikli Guð, við dómsins stól.


Athugagreinar

Þorkell Sigurbjörnsson samdi áhrifamikið og sterkt lag við sálminn, sem kom út í Sálmabókarviðbæti 1974.