Sálmur 80 | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Sálmur 80

Fyrsta ljóðlína:Bjart er yfir Betlehem
Viðm.ártal:≈ 1950
1.
Bjart er yfir Betlehem,
blikar jólastjarna.
Stjarnan mín og stjarnan þín,
stjarnan allra barna.
Var hún áður vitringum
vegaljósið skæra.
Barn í jötu borið var,
barnið ljúfa, kæra.
2.
Víða höfðu vitringar
vegi kannað hljóðir.
Fundið sínum ferðum á
fjöldamargar þjóðir.
Barst þeim allt frá Betlehem
birtan undurskæra.
Barn í jötu borið var,
barnið ljúfa, kæra.
3.
Barni gjafir báru þeir.
Blítt þá englar sungu.
Lausnaranum lýstu þeir,
lofgjörð Drottni sungu.
Bjart er yfir Betlehem,
blikar jólastjarna.
Stjarnan mín og stjarnan þín,
stjarnan allra barna.