Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
SöfnÍslenskaÍslenska |
Flokkar
Allt (1291)
Afmæliskvæði (11)
Ástarljóð (10)
Baráttukvæði (3)
barnagælur (1)
Biblíuljóð (3)
Brúðkaupsljóð (1)
Daglegt amstur (8)
Eftirmæli (13)
Ferðavísur (3)
Formannavísur (1)
Fræðsluljóð (1)
Gamankvæði (18)
Háðkvæði (8)
Hátíðaljóð (2)
Heilræði (1)
Hestavísur (2)
Hindisvík (2)
Holtavörðuheiði (3)
Húnaþing (8)
Húnvetningar (7)
Hyllingarkvæði (4)
Jóðmæli (1)
Jólaljóð (3)
Kappakvæði (1)
Lífsspeki (2)
Ljóðabréf (6)
Náttúruljóð (48)
Oddi (1)
Rímur (1)
Sagnakvæði (1)
Sálmar (2)
Sálmur (2)
Skáldsþankar (44)
Strandir (2)
Söguljóð (11)
Söngvamál (1)
Tíðavísur (1)
Tregaljóð (4)
Þululjóð (1)
Ættjarðarkvæði (15)
Ævikvæði (2)
Jón Lárusson í HlíðFyrsta ljóðlína:Frænda góðan felldi að jörðu
Höfundur:Kristinn Bjarnason frá Ási Hún.
Heimild:Ómar frá ævidögum. bls.11
Viðm.ártal:≈ 1950
Skýringar
bóndi og kvæðamaður
1. Frænda góðan felldi að jörðfeigðin hljóð í starfi. Bændaþjóðin heimskjör hörð hlaut að móður arfi.
2. Leið var þröng að afla auðsundir ströngu banni. Synjaði öngum yls né brauðs útigöngu-manni.
3. Hinstu lóðarleigu galt,létti sjóð til barna. Moldin hljóða erfir allt, endar slóðin farna.
4. Jóni dalalífið lét,léttum mal þó skili. Mörg eru smalans farin fet fram hjá Valagili.
5. Hélt á Fróni fé að beit,fann við tjóni bætur. Átti í Jóni íslensk sveit alda grónar rætur.
6. Hressti geðið hjástaðan,hýsti féð á vöku. Innri gleði af því fann, – og að kveða stöku.
7. Bóndinn frómi á freðnum skómfyllti róminn háa. Báru hljómar enduróm út í tómið bláa.
8. Hugþekk sjón var hjörðin fríð,hennar þjónar deyja. Burtu er Jón úr Brattahlíð, bergmáls tónar þegja.
9. Eftir lifað æviskeiðæðra svifi er borin, fellur drif á fjármanns leið, – fennir yfir sporin. |