Vorljóð | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Vorljóð

Fyrsta ljóðlína:Sjáið! Vor í hlíðum hlær
Viðm.ártal:≈ 1925
1.
Sjáið! Vor í hlíðum hlær,
hvammar skrýðast, lautir gróa,
Ilmur berst um alla móa,
angar björk og völlur grær.
Inn til dala út við strendur,
iðar líf í þýðum blæ.
Laða glaðar æður, endur,
ungahóp á tjörn og sæ.
2.
Ungra meyja vanga og vör
vorið prýðir skarlatsrósum,
skín í björtum brúnaljósum,
bregður ljóma á þeirra för.
Þó að vetur berji á bölum,
blindi skuggar sólarlags,
skína í Kvennaskólans sölum
skærir litir vors og dags.
3.
Vorsins líf og lífsins vor
ljómar yfir þessum dögum.
Rekja skal í söng og sögum
sextíu ára heillaspor.
Eftir harðan voðavetur
vísir spratt í þröngum reit, –
óskahlyn og óðalssetur
eignast hafði þessi sveit.
4.
Ástrík lund og höndin heit
hlúðu blítt að gróðri ungum.
Sterkar mundir steinum þungum
stjakað hafa úr grænum reit.
Fyrir samstarf kvenna og karla
krýna stofninn lauf og blöð.
Farsæld mun um framtíð alla
frjóvga þessa gróðrarstöð.
5.
Vaxi meyjar eins og eik.
Íslensk fold að rótum hlúi
og við heiðan himin búi
háleit önd við starf og leik.
Æskan fram að ellidögum
eigi tök á hverri sál.
Yfir skólans heimahögum
hljómi vorsins töframál.