Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
SöfnÍslenskaÍslenska |
Flokkar
Allt (1291)
Afmæliskvæði (11)
Ástarljóð (10)
Baráttukvæði (3)
barnagælur (1)
Biblíuljóð (3)
Brúðkaupsljóð (1)
Daglegt amstur (8)
Eftirmæli (13)
Ferðavísur (3)
Formannavísur (1)
Fræðsluljóð (1)
Gamankvæði (18)
Háðkvæði (8)
Hátíðaljóð (2)
Heilræði (1)
Hestavísur (2)
Hindisvík (2)
Holtavörðuheiði (3)
Húnaþing (8)
Húnvetningar (7)
Hyllingarkvæði (4)
Jóðmæli (1)
Jólaljóð (3)
Kappakvæði (1)
Lífsspeki (2)
Ljóðabréf (6)
Náttúruljóð (48)
Oddi (1)
Rímur (1)
Sagnakvæði (1)
Sálmar (2)
Sálmur (2)
Skáldsþankar (44)
Strandir (2)
Söguljóð (11)
Söngvamál (1)
Tíðavísur (1)
Tregaljóð (4)
Þululjóð (1)
Ættjarðarkvæði (15)
Ævikvæði (2)
Viðm.ártal:≈ 0
Flokkur:Minningar- og erfiljóð
1. Þegar lagt er upp að morgnier bjart frá brún að sjá til bláfjallanna í austri og sól á sléttafelli og trippin rekast vel yfir heiðina-há um huldumannabyggðir hjá gangnamannahelli. Þó hnyklist úði grár um þröm og fremrafjall þú finnur þér í hjarta bjarnaryl. Það kynni að reynast vandratað um kolugafjall en kannski verður áð við skáldagil. 2. En hófsár gerast trippiná leið um leggjabrjót og lítið er um gras á hungurbakka á stórasandi og kili við ströngukvísl og þjót þar sem straumabrimið skellur hátt á makka þar er brotið grýtt og tæpt - þú herðir hug og geð og þú herðir grip um svipu þína og taum til að berjast við þann straum sem þú berst þó alltaf með - til að berjast við hinn ósigrandi straum. 3. Frá laugarkvíslarfitjumer langt í hvannamó og loftið stundum myrkt af sandarróti og kannski fyndist einhverjum að komið væri nóg en klárar orðnir þreyttir að sækja upp í móti. Og blær af jökulhorni er bitur eins og sverð hinn blakki melur harður eins og steinn. Og þér er orðið ljóst að þú ert einn á ferð og þó þú hrópir gegnir ekki neinn. 4. Þá glottir til þínhin gamalkunna sögn um goðaland sem enginn fundið getur og öræfanna kyrrð og öræfanna þögn er allt í einu grimm sem frostavetur. Loks ber þig enn að á þar er hljótt og húmað að og hinumeginn engan bakka að sjá og hér er engin brú og hér er ekkert vað. Svo hleypir þú til sunds í jökulsá. |