Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
SöfnÍslenskaÍslenska |
Flokkar
Allt (1291)
Afmæliskvæði (11)
Ástarljóð (10)
Baráttukvæði (3)
barnagælur (1)
Biblíuljóð (3)
Brúðkaupsljóð (1)
Daglegt amstur (8)
Eftirmæli (13)
Ferðavísur (3)
Formannavísur (1)
Fræðsluljóð (1)
Gamankvæði (18)
Háðkvæði (8)
Hátíðaljóð (2)
Heilræði (1)
Hestavísur (2)
Hindisvík (2)
Holtavörðuheiði (3)
Húnaþing (8)
Húnvetningar (7)
Hyllingarkvæði (4)
Jóðmæli (1)
Jólaljóð (3)
Kappakvæði (1)
Lífsspeki (2)
Ljóðabréf (6)
Náttúruljóð (48)
Oddi (1)
Rímur (1)
Sagnakvæði (1)
Sálmar (2)
Sálmur (2)
Skáldsþankar (44)
Strandir (2)
Söguljóð (11)
Söngvamál (1)
Tíðavísur (1)
Tregaljóð (4)
Þululjóð (1)
Ættjarðarkvæði (15)
Ævikvæði (2)
BrúðkaupsvísurFyrsta ljóðlína:Hann leit ei við stúlkum; hann lifnaði ei hót
Höfundur:Hannes S. Blöndal
Heimild:Ljóðmæli Hannes S. Blöndal. bls.88
Viðm.ártal:≈ 0
Skýringar
til Björns Kristóferssonar og Ingibjargar Þorvarðsdóttur Blönduósi - í mars 1890
Hann leit ei við stúlkum; hann lifnaði ei hót
þó að ljóshærð og brosfögur mey í alvöru og gamni´ honum gæfi undir fót því um giftingar kæri´hann sig ei. Hann Björn - hann gekk sína beinu leið með breiðu herðunum klauf hann stormviðri lífsins sem stjórsjói skeið en - stúlkurnar kölluðu hann daufan. Með ástamálin gekk ósköp tregt því ágæta máli hann sýndi vörn og allflestar héldu þær ómögulegt að yfirvinna þann björn. En þegar við héldum hann hættunni úr og hreint ekki sigrandi meir þá kemur sú fregn - eins og skrugguskúr úr skafheiðu lofti - Herra minn trúr! Björninn er unnin Amors af sigrandi geir. Á þjóðtrúnni veit eg þeirri skil að þoli sá íslenskan byl og varla í frosti verði til sem vermist af bjarnaryl. Og því er ei hætt við, að þessi ást þrjóti ellegar deyi eg hefi´ ekki þekkt þann björn sem að brást og býst við að þekkja hann eigi. Athugagreinar
Björn var bóndi að Holti í Hjaltabakkasókn en varð úti 1911
|