Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
Þroskaleiðin | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Flokkar

Allt  (1291)
Afmæliskvæði  (11)
Ástarljóð  (10)
barnagælur  (1)
Biblíuljóð  (3)
Eftirmæli  (13)
Ferðavísur  (3)
Gamankvæði  (18)
Háðkvæði  (8)
Heilræði  (1)
Hestavísur  (2)
Hindisvík  (2)
Húnaþing  (8)
Húnvetningar  (7)
Jóðmæli  (1)
Jólaljóð  (3)
Kappakvæði  (1)
Lífsspeki  (2)
Ljóðabréf  (6)
Náttúruljóð  (48)
Oddi  (1)
Rímur  (1)
Sagnakvæði  (1)
Sálmar  (2)
Sálmur  (2)
Skáldsþankar  (44)
Strandir  (2)
Söguljóð  (11)
Söngvamál  (1)
Tíðavísur  (1)
Tregaljóð  (4)
Þululjóð  (1)
Ævikvæði  (2)

Þroskaleiðin

Fyrsta ljóðlína:Allra getur ævibraut
bls.95
Viðm.ártal:≈ 0
Tímasetning:1925
1.
Allra getur ævibraut
orðið hretum bundin
en sig mun hvetja sjálfa´ í þraut
sanna hetjulundin.
2.
Deyi æskudraumsins bál
duga´ ei aðrir logar
mót því illa er mannsins sál
mest í duftið togar.
3.
Aldrei svæf þann orknið
æsku´er hæfir sinni
svo verði ei ævin eintóm bið
eftir gæfu þinni.
4.
Viljirðu sanna farsæld fá
finndu eigin galla
svo ef einum sigrast á
síðar vinnurðu alla.