Kvæði Gríms Thomsens | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Kvæði Gríms Thomsens

Fyrsta ljóðlína:Sá, þótt væri sjálfmenntaður
Viðm.ártal:≈ 0
Tímasetning:1887
1.
Sá, þótt væri sjálfmenntaður
sögu var hann dyggur þegn
sannkallaður sagnamaður
sannleikanum trúr og gegn.
2.
Eigi fyrir hefð né hrósi
hann að sínu starfi vann
hann að sannleiks leitaði ljósi
leitaði vel og margt hann fann.
3.
Hinu liðna heitt hann unni
hugall að ei gleymdist það
maklegan í minningunni
mörgum bjó hann samastað.
4.
En - á lífsins útigangi
enginn hæli Daða bjó
loksins einn á víðavangi
varð hann úti í frosti og snjó.
5.
Nein ei framar neyð hann pínir
norðanbylur lukti hvarm
og fannar sveiptur silfurlíni
sofnaði hann við móður barm.


Athugagreinar

Fyrst prentað í Fjallkonunni 1887