Vorið 1963 — Komið heim frá Grindavík | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Vorið 1963 — Komið heim frá Grindavík

Fyrsta ljóðlína:Ó, borgin mín, þú ert fríðust fjalla
Viðm.ártal:≈ 0

Ó, borgin mín, þú ert fríðust fjalla
ég fyllist lotningu gagnvart þér
og finn, að á mig þú ert að kalla
það endurhljómar í hjarta mér.

Við fótskör þína og flóann bláa
ég fyrstu skrefin til þroska hlaut.
Þótt kuldinn næddi um kofann lága,
ég hvíldi tryggur við móðurskaut.

Svo liðu árin við ærsl og leiki.
Ég ungur kvaddi mín bernskulönd.
En þó var hugurinn hér á reiki,
og hjartað tilheyrði Skagaströnd.

Hér vil ég una, unz lífi lýkur,
hér liggja bernskunnar fyrstu spor.
Og þegar brimið um boða rýkur,
mér birtast aftur hin liðnu vor.