Kveðja | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Kveðja

Fyrsta ljóðlína:Nú haustar að og fölnar dökkgræn fit
Höfundur:Hermann Pálsson
bls.7
Viðm.ártal:≈ 0
Tímasetning:1950
Nú haustar að og fölnar dökkgræn fit.
Mig fýsir heim.
Ég vildi feginn fljúga þín á vit
er fuglasveim

að norðan ber um hlýrri lönd og höf
í hægum byr
en vængjaleysi veldur minni töf.
Því verð ég kyrr.

Ég man, að enga miskunn vetur þinn
né mildi ber.
Þó rennur til þín heimfús hugur minn
er hausta fer.