Sumardagur | Kvæða- og vísnasafnið Haraldur
Kvæða- og vísnasafnið Haraldur

Innskráning ritstjóra

Sumardagur

Fyrsta ljóðlína:Sólin skein á haf og sund
Viðm.ártal:≈ 1975
Flokkur:Tíðavísur

Skýringar

Sumarstemning á víkinni.
Sólin skein á haf og sund
sumardegi á,
piltur lá í leyni
og horfði stúlku á.
Hann mun henni unna,
það enginn vita má.

Í fjöru leika börnin smá
sumardegi á,
aldan gjálfrar létt við stein
og fjörusandkorn grá
hún mun seinna tylla sér
kambabrún á.

Litla sá ég hörpuskel
sumardegi á,
hún lá þar við þanggreinsrót
sem bærðist til og frá.
Lítil stúlka hljóp þar að
og hugðist dýrgrip fá.

Í fjarska sá ég haf og land
sumardegi á
söngur var í lofti
og fuglar út um sjá
tíbráin í loftinu
titraði þá.