Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
SöfnÍslenskaÍslenska |
Flokkar
Allt (334)
Afmæliskvæði (25)
Ástarljóð (4)
Baráttukvæði (1)
Bæjavísur (6)
Bænir og vers (5)
Daglegt amstur (21)
Eftirmæli (2)
Ellikvæði (2)
Formannavísur (4)
Gamankvæði (24)
Hátíðaljóð (6)
Heilræði (5)
Heimsádeilur (2)
Helgikvæði (1)
Hyllingarkvæði (29)
Jólaljóð (20)
Lífsspeki (14)
Ljóðabréf (10)
Náttúruljóð (49)
Sagnakvæði (1)
Sálmar (1)
Skáldsþankar (55)
Særingar (1)
Tíðavísur (17)
Tregaljóð (8)
Vögguljóð (1)
Þululjóð (6)
Ættjarðarkvæði (9)
Ævikvæði (1)
BraggavarðarþulaFyrsta ljóðlína:Blessaður Íddi Bakkagé
Höfundur:Hjörtur E. Þórarinsson á Tjörn
Heimild:Krosshólshlátur. bls.92
Viðm.ártal:≈ 1975
Tímasetning:1978
Skýringar
Hjörtur og Árni sonur hans fóru fram í Bragga að sækja kvígur frá Tjörn á gangnadag 1978. Gangnamenn voru á fjalli og Íddi ( Ríkarður í Bakkagerði ) einn í Bragganum, en hann gengdi embætti braggavarðar.
Er yngri synir þeir Kristján og Hjörleifur komu að um kvöldið kom í ljós, að einhverjir höfðu komist í nesti þeirra og drykkjarföng! Fór raunar ekki á milli mála hverjir voru þar að verki!
Blessaður Íddi Bakkagé
Braggans gætti ef að ske kynni að þrælslegt þjófalið þyrði að trufla hússins frið, skriði fram úr felunum og fyllti sig á pelunum, træðist niður í töskurnar og tæmdi allar flöskurnar, bryti stoltu stútana og stórskaddaði kútana. Þá yrði gól og gráturinn og gleymdist Krosshólshláturinn. |