Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
SöfnÍslenskaÍslenska |
Flokkar
Allt (334)
Afmæliskvæði (25)
Ástarljóð (4)
Baráttukvæði (1)
Bæjavísur (6)
Bænir og vers (5)
Daglegt amstur (21)
Eftirmæli (2)
Ellikvæði (2)
Formannavísur (4)
Gamankvæði (24)
Hátíðaljóð (6)
Heilræði (5)
Heimsádeilur (2)
Helgikvæði (1)
Hyllingarkvæði (29)
Jólaljóð (20)
Lífsspeki (14)
Ljóðabréf (10)
Náttúruljóð (49)
Sagnakvæði (1)
Sálmar (1)
Skáldsþankar (55)
Særingar (1)
Tíðavísur (17)
Tregaljóð (8)
Vögguljóð (1)
Þululjóð (6)
Ættjarðarkvæði (9)
Ævikvæði (1)
KórfélagarFyrsta ljóðlína:Halldór í K.E.A. með höfuðið bjart
Höfundur:Þorsteinn Kristinsson
Heimild:HérSvarf 2013-2014. Viðm.ártal:≈ 1975
Flokkur:Gamankvæði
Skýringar
Gamanbragur um nokkra félaga í karlakórnum.....
Halldór í K.E.A. með höfuðið bjart
lét heillast af Framsóknar spjalli, en það hefur leikið hann helvíti hart, því hratt vex hans mjallhvíti skalli. Hann fylgja ætti þjóðvörn um ókomin ár þá aftur mun vaxa hans fallega hár. Reynsla hans Dóra varð svikul og sár. Hans Dóra ...... hvaða Dóra? Nú hans Dóra, Dóra, Dóra, Dóra í kórnum. Hann Villi í margskonar viðskiftum berst sem að virðingu og aur honum gefur. Í ár hafa hrognin þó auðgað hann mest og allskonar sóma af þeim hefur. Röddin hans háa er hrein eins og mjöll heyrist um dali og berst yfir fjöll. Hans er því saga með ágætum öll. Hans Villa ... hvaða Villa? Hans Villa, Villa,Villa, Villa í kórnum. Halldór á Melum er harður við flest enda hetja úr Framsóknarliði. Þó útgerðin gangi ekki alltaf sem best og erfitt að standa ´því sviði. Hall var hjá KEA og er það víst enn enda mörg dæmi um ráðsnjalla (samskonar ) menn. Hann kann líka á þeim þar taumhöldin tvenn. Hann Dóri ... hvaða Dóri? Hann Dóri, Dóri, Dóri, Dóri í kórnum. Hver hefur í kórnum þá kvenlegu rödd það er kempan frá Brekkukoti. Og illa værum við öllsömun stödd ef oft lægi kappinn í roti. Hann syngjandi leggur því hnakk á sinn hest en hefur sig áður þó dálítið hresst. Kemur á sviðið og kveðandi sest. Hann Tryggvi .... hvaða Tryggvi? Nú hann Tryggvi, T T T í kórnum. Þið sjáið hann Bomma á senunni hér það sjást þar oft lakari fuglar. Heppnast að láta oft hlæja að sér hérumbil sama hvað ruglar. Hann syngur og leikur og drekkur og deyr. Drottinn minn góður, ég segi ekki meir. Svo yrkir hann líka þann andskotans leir. Hann Bommi .... hvaða Bommi? Nú hann Bommi, B B B í kórnum. Árni vor kaupmaður kappsamur er kann ekki við sig með lítið, því prangaraeðlið á hann í sér þó allmörgum finnist það skrítið. Hvað ætli stríðið hans standi í mörg ár. Stór hlaut nú Valdimar glópskunnar sár. En Árni er jafnan í kollinum klár. Hann Árni .... hvaða Árni? Nú hann Árni, Á Á Á í kórnum. |