Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
SöfnÍslenskaÍslenska |
Flokkar
Allt (334)
Afmæliskvæði (25)
Ástarljóð (4)
Baráttukvæði (1)
Bæjavísur (6)
Bænir og vers (5)
Daglegt amstur (21)
Eftirmæli (2)
Ellikvæði (2)
Formannavísur (4)
Gamankvæði (24)
Hátíðaljóð (6)
Heilræði (5)
Heimsádeilur (2)
Helgikvæði (1)
Hyllingarkvæði (29)
Jólaljóð (20)
Lífsspeki (14)
Ljóðabréf (10)
Náttúruljóð (49)
Sagnakvæði (1)
Sálmar (1)
Skáldsþankar (55)
Særingar (1)
Tíðavísur (17)
Tregaljóð (8)
Vögguljóð (1)
Þululjóð (6)
Ættjarðarkvæði (9)
Ævikvæði (1)
Trillukarlar 1970Fyrsta ljóðlína:Karlarnir á grásleppunni góna á hafið út
Höfundur:Anton Guðlaugsson í Lundi
bls.43
Viðm.ártal:≈ 1975
Tímasetning:1970
Flokkur:Daglegt amstur
Skýringar
Trillukarlar á Dalvík 1970 ..... gamansamar mannlýsingar!
Karlarnir í grásleppunni góna á hafið út,
Grenó er þar fyrst og fremst, með Dabba litla kút á eftir koma Garðar Björns og Gunnar Magnússon, grínistinn hann Palli Kristjáns, blístrar lon og don. Siggi karl í Sælandi syngur yfir Hjálmari Viðar Jónsson verður fár vöðlast áfram Árni Lár Steini Sím með dós af snússi, stendur klár. Út á miðin bátarnir þeir berast furðu fljótt, á flestum þeirra er lítið sagt, en engum er þó rótt. Taumlaust hefur löggustjórann taugaspenna háð, tilþrif eru í Rúnari, sem gefur öðrum ráð. Tóti Þorleifs tórir enn Tóta Baldvins vantar menn Inga Lár ég laginn tel Laugi og Simbi fiska vel guði á vald ég gamla Tona og Ragga fel. Kominn er í trillustuðið Kristinn Tía á karlinn Björgvin segir alltaf gömlum dögum frá. Allt hjá Árna er á Skutli jafnan skralli í Skarphéðinn á Ödda, sem er oftast frjáls og frí. Alli á Ósk er ósköp smár oftast Rósmundur er klár Stebbi Gunnlaugs startar vél stjórnar Sigga að ég tel. Grásleppuna Árni Guðlaugs aflar vel. Trillukarlar eru oftast orkumiklir menn, óttalaust þeir hafa sótt og sækja sjóinn enn. Þó þeir séu stundum heldur stirfnir orðum í, stendur það ei djúpt og fyrirgefst það því. Þeir hamast heilu dagana og halda sig við bryggjuna, margt þeir skrafa og skemmta sér, skammast stundum eins og ber. En flestir eru frjálslegir, sem betur fer. |