Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
SöfnÍslenskaÍslenska |
Flokkar
Allt (334)
Afmæliskvæði (25)
Ástarljóð (4)
Baráttukvæði (1)
Bæjavísur (6)
Bænir og vers (5)
Daglegt amstur (21)
Eftirmæli (2)
Ellikvæði (2)
Formannavísur (4)
Gamankvæði (24)
Hátíðaljóð (6)
Heilræði (5)
Heimsádeilur (2)
Helgikvæði (1)
Hyllingarkvæði (29)
Jólaljóð (20)
Lífsspeki (14)
Ljóðabréf (10)
Náttúruljóð (49)
Sagnakvæði (1)
Sálmar (1)
Skáldsþankar (55)
Særingar (1)
Tíðavísur (17)
Tregaljóð (8)
Vögguljóð (1)
Þululjóð (6)
Ættjarðarkvæði (9)
Ævikvæði (1)
MinningFyrsta ljóðlína:Lauk lífsdegi
Höfundur:Eiríkur Pálsson frá Ölduhrygg
Heimild:Alþýðublað Hafnarfjarðar. bls.8.tbl. 1997 bls. 9 24. des.
Viðm.ártal:≈ 1975
Tímasetning:1964
Flokkur:Minningar- og erfiljóð
Skýringar
Minning um Björn Jóhannesson, bæjarfulltrúa ( D. 22.11. 1964 ), sem birtist í Alþýðublaði Hafnarfjarðar 24. des. 1997 í grein um endurbyggingu Krísuvíkurkirkju. En Björn átti allt frumkvæði að þessum framkvæmdum.
Lauk lífsdegi
ljúfur maður. Vitur, vel gerður og vinur hlýr. Þreyttur orðinn af þungum róðri. Gott er góðum að hvílast. Ævina alla ei sér hlífði. Gjörhugull um gang mála. Vinnandi stétta vildi gengi. Stefnumótandi í störfum öllum. Hafnarfjarðar hagsmuna gætti. Oddviti þar um árafjöld. Trausts naut og trúnaðar. Gegn maður og góðviljaður. Þökk hafðu, þín fyrir störfin. Réttsýni glögga og ráðin hollu. Hógværð einstaka og höfðingslund. Hjá föður lífsins og friðar njóttu. |