Nýárskveðja | Kvæða- og vísnasafnið Haraldur
Kvæða- og vísnasafnið Haraldur

Innskráning ritstjóra

Nýárskveðja

Fyrsta ljóðlína:Þakkir hlýjar þér ég sendi
Viðm.ártal:≈ 1975
Tímasetning:1982
Flokkur:Tíðavísur

Skýringar

Nýjársdagur 1982
Þakkir hlýjar þér ég sendi
þýðir frerann vinsemd þín
allt frá fyrstu æskudögum
ylinn hefur lagt til mín.

Nú er runnið enn eitt árið
ógnar hratt í tímans haf.
Ég þakkir flyt af hrærðum huga
herra þeim er lífið gaf.

Nýrra daga röðull rennur
rofna tengsl við gengin spor.
Óljós staða á ári nýju
enginn veit hvað bíður vor.

Þó stynji jörð og stjörnur hrapi
stormar ýfi loft og höf.
Ég veit að tryggð þín fast mér fylgir
fram á ystu dauðans nöf.