Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
SöfnÍslenskaÍslenska |
Flokkar
Allt (334)
Afmæliskvæði (25)
Ástarljóð (4)
Baráttukvæði (1)
Bæjavísur (6)
Bænir og vers (5)
Daglegt amstur (21)
Eftirmæli (2)
Ellikvæði (2)
Formannavísur (4)
Gamankvæði (24)
Hátíðaljóð (6)
Heilræði (5)
Heimsádeilur (2)
Helgikvæði (1)
Hyllingarkvæði (29)
Jólaljóð (20)
Lífsspeki (14)
Ljóðabréf (10)
Náttúruljóð (49)
Sagnakvæði (1)
Sálmar (1)
Skáldsþankar (55)
Særingar (1)
Tíðavísur (17)
Tregaljóð (8)
Vögguljóð (1)
Þululjóð (6)
Ættjarðarkvæði (9)
Ævikvæði (1)
Forsetinn ferðast um NorðurlandFyrsta ljóðlína:Forseti vor var feginn
Höfundur:Anton Guðlaugsson í Lundi
Viðm.ártal:≈ 2000
Tímasetning:1999
Skýringar
Forsetinn ferðast um Norðurland 20.05. 1999.
Meðal annars var honum ekið í hestakerru og var Sveinn í Kálfskinni kúskur með pípuhatt. Sumir héldu að hann væri forsetinn.
Forseti vor var feginn
að finna hér vinaþel. Hann varðar hér rétta veginn og virðist ganga það vel. Það fer honum flest vel úr hendi nú flögrar hann stað úr stað. „ Komminn “ það fyrrum kenndi, hann kann mjög vel við það. Hann skoðaði margt mjög skrítið, en skálmaði áfram hratt, en fannst flest lélegt og lítið og leiddist þetta snatt. Í hestvagni með Sveini í Kálfskinni.... Hann fluttu í vildar vagni og vagnstjórinn bóndagrey. Það kom ei að góðu gagni því gestirnir vissu það ei, hvor þeirra væri sá sanni, sá er við stjórnina sat, eða hinn sem dauðhræddur hékk og hélt sér eins og hann gat. En þegar úr kerru þeir komu, þá kunngert var hver var hver, kúskur með kollháan pípuhatt eða karlinn sem hræddur hélt sér. |