Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
SöfnÍslenskaÍslenska |
Flokkar
Allt (334)
Afmæliskvæði (25)
Ástarljóð (4)
Baráttukvæði (1)
Bæjavísur (6)
Bænir og vers (5)
Daglegt amstur (21)
Eftirmæli (2)
Ellikvæði (2)
Formannavísur (4)
Gamankvæði (24)
Hátíðaljóð (6)
Heilræði (5)
Heimsádeilur (2)
Helgikvæði (1)
Hyllingarkvæði (29)
Jólaljóð (20)
Lífsspeki (14)
Ljóðabréf (10)
Náttúruljóð (49)
Sagnakvæði (1)
Sálmar (1)
Skáldsþankar (55)
Særingar (1)
Tíðavísur (17)
Tregaljóð (8)
Vögguljóð (1)
Þululjóð (6)
Ættjarðarkvæði (9)
Ævikvæði (1)
Jólin 2011Fyrsta ljóðlína:Árið gamla er að líða
Höfundur:Þórir Haraldsson
Heimild:HérSvarf 2013-2014. Viðm.ártal:≈ 2000
Tímasetning:2011
Flokkur:Jólaljóð
Árið gamla er að líða
eftir næsta skulum bíða. Minningarnar myndir smíða margar glitra en aðrar svíða. Margir dóu og margir fæddust, margir hlóu en aðrir hræddust. Feitir glöddust, margir mæddust margir hlupu en aðrir læddust. Þú nýja ár sem nálgast hægt og hljótt nú er að sýna hvað mun í þér búa. Óskum mínum að þér vil ég snúa, annastu börn þín nýtan dag sem nótt. Engin líði vonsku vos veraldar, né éti tros, tárum fækki, breikki bros, blessun aukist, minnki los. Sælan aukist svo með oss, sem ei buna, heldur foss. Vendum síðan kvæði í kross kát og sendum jólakoss. |