Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
SöfnÍslenskaÍslenska |
Flokkar
Allt (334)
Afmæliskvæði (25)
Ástarljóð (4)
Baráttukvæði (1)
Bæjavísur (6)
Bænir og vers (5)
Daglegt amstur (21)
Eftirmæli (2)
Ellikvæði (2)
Formannavísur (4)
Gamankvæði (24)
Hátíðaljóð (6)
Heilræði (5)
Heimsádeilur (2)
Helgikvæði (1)
Hyllingarkvæði (29)
Jólaljóð (20)
Lífsspeki (14)
Ljóðabréf (10)
Náttúruljóð (49)
Sagnakvæði (1)
Sálmar (1)
Skáldsþankar (55)
Særingar (1)
Tíðavísur (17)
Tregaljóð (8)
Vögguljóð (1)
Þululjóð (6)
Ættjarðarkvæði (9)
Ævikvæði (1)
Viðm.ártal:≈ 1975
Flokkur:Náttúruljóð
Glöð hér um grónar leiðir
geng ég að kveldi dags, skapast nú skuggar dökkir því skamst er til sólarlags. Ennþá við götuna geymist góðkunnur vinur einn. Burstir til austurs ber hann, blágrýtis huldusteinn. Krýp ég við klettinn bláa klappa þar létt á dyr, hlusta hvort huldan kemur en hugurinn þögull spyr: Eru til aðrir heimar sem auga mitt hvergi sér? Í spurn ég til himins horfi og hugsa, hver svarar mér? Ég heyri minn eigin hjartslátt og hugurinn kallar til þín, til þín sem hér ríkjum ræður og roðar nú fjöllin mín. Alheims og alvalds kraftur, aldrei þinn máttur dvín. Hvað er í blámanum bjarta sem bak við jöklana skín? |