| Vísnasafn Skagfirðinga
Vísnasafn Skagfirðinga

Innskráning ritstjóra
AAAA2

Stefjasöng að stíla mér

Bls.Glóðafeykir 4. ár.
Stefjasöng að stíla mér.
Stakkur þröngur skorinn er.
Kveð þá stundum stökumynd.
Stef um grund og tæra lind.
Jafnvel hundinn, hest og kind.
Heiðblátt sund og fjallatind.
Álftaljóð og lóuklið.
Lækjarhljóð og fossanið.
Reyni í óði að setja á svið
sólarglóð og vorsins frið.