| Vísnasafn Skagfirðinga
Vísnasafn Skagfirðinga

Innskráning ritstjóra
AAAA2

Lúsin hefur lagst á okkar frændur

Bls.Alþbl. 13.03.71.
Lúsin hefur lagst á okkar frændur
jafnt landshöfðingja, verkamenn og bændur.
Sú djöfuls padda drattast um hvert hús.
Í Danaveldi skríður allt í lús.
Gegn lúsaplágu lengi stríð vér háðum
og lumum sjálfsagt enn á góðum ráðum.
En látum Drottins áform andófslaus
þótt einhvers staðar klæi danskan haus.