| Vísnasafn Skagfirðinga
Vísnasafn Skagfirðinga

Innskráning ritstjóra
AAAA2
Gætið ykkar góðir bræður
gjöf er lífið, dauðinn náð.
Eilíf forsjón öllu ræður
eftir því sem mér er tjáð.

Fararskjótinn Skjögur-Grána
skilaði mér heim á leið.
Signdi ég mig og út í ána
upp á líf og dauða reið.

Ekki má það minna vera
en maður þakki fyrir sig.
Dæmalaust var Drottinn góður
að drepa hrossið en ekki mig.