| Vísnasafn Skagfirðinga
Vísnasafn Skagfirðinga

Innskráning ritstjóra
AAAA2


Tildrög

Bréf til tveggja vina. Speki.
Gott er að hafa af gulli nóg.
Gott er romm í heitu.
Gott er að eiga góða skó
að ganga á í bleytu.

Hart er að sitja á hörðum stein.
Hart er á gólfi að liggja.
Hart er að naga hnútubein
sem hundar ekki þiggja.

Íllt er að farast úti á sjó.
Íllt er að krókna í landi.
Íllt er að hafa af engu nóg
öðru en skít og hlandi.