| Vísnasafn Skagfirðinga
Vísnasafn Skagfirðinga

Innskráning ritstjóra
AAAA2
Vandirðu ei verk þín maður.
Víkirðu skyldum frá.
Öruggur enginn staður
er þér til varnar þá.

Næðir til sárrar nektar.
Nefna þarf ekki töp.
Sækja munu til sektar
seinna þín eigin glöp.