| Vísnasafn Skagfirðinga
Vísnasafn Skagfirðinga

Innskráning ritstjóra
AAAA2
Lágur himin sjónarsvið.
Sáralítill hringur.
Ekki til að vaka við
vonfrár einstaklingur.

Skýrist hugur, skerpist sýn.
Skapadómar rakna.
Þyrnirósa þráin mín
þú ert nú að vakna.

Víkkar himinn stækkar storð
stjörnur tindra vona.
Töfrum mögnuð ástarorð
öllu breyttu svona.