Rósa Guðmundsdóttir (Skáld-Rósa) | Vísnasafn Skagfirðinga
Vísnasafn Skagfirðinga

Innskráning ritstjóra

Rósa Guðmundsdóttir (Skáld-Rósa) 1795–1855

ÁTTA LAUSAVÍSUR
Rósa var fædd á Ásgerðarstöðum í Hörgárdal í Eyjafirði árið 1795. Hún bjó með fyrri manni sínum, Ólafi Ásmundssyni, á ýmsum bæjum í Húnaþingi, meðal annars á Vatnsenda í Vesturhópi. Um tíma var hún í þingum við Natan Ketilsson, þann er myrtur var á Illugastöðum á Vatnsnesi. Rósa og Ólafur slitu samvistir en Rósa giftist síðar Gísla Gíslasyni og bjuggu þau um tíma í Markúsarbúð undir Jökli. Allmargar vísur eru varðveittar eftir Rósu, en þekktust er hún fyrir ástavísur sínar. (Páll Eggert Ólason: Íslenzkar æviskrár IV, bls. 176-177) Rósa var líka kennd við Vatnsenda, nefnd Vatnsenda-Rósa.

Rósa Guðmundsdóttir (Skáld-Rósa) höfundur

Lausavísur
Augað mitt og augað þitt
Augað snart er tárum tært
Augun mín og augun þín
Eg hef friðar enga stund
Hrekkja spara má ei mergð
Oft á veiðum Venusar
Trega ég þig manna mest
Við skulum ganga hól af hól