Ljósálfar | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Ljósálfar

Fyrsta ljóðlína:Svífur ljósálfa fjöld um hið kyrrsæla kvöld
bls.85–86
Bragarháttur:Sex línur (tvíliður) oooooo
Viðm.ártal:≈ 1925
Tímasetning:1930

Skýringar

Úr ljóðabókinni Gaman og alvara.
1.
Svífur ljósálfa fjöld um hið kyrrsæla kvöld
og af kyndlunum bjart verður náttmyrkrið svart.
Eins og gneistaflug þétt áfram liðandi létt
smýgur loftið í gegn þetta tindrandi regn
þessi góðkunna glóð,
þetta glysfagra blys.
2.
Jafnvel lamaðan hug getur hafið á flug
yfir helmyrkra bik þétta ljósálfa blik,
svo við lífið í sátt upp um héiðloftið hátt
getur hafist hver önd, sem vill nema sér lönd
ljóssins hásæti hjá,
þar sem húmar ei rúm.
3.
Þegar endað er skeið, og mitt líf sína leið
hefur liðið of fljótt, eins og draumur um nótt, –
vil ég fljúga um geim, yfir gervallan heim,
vera geislandi sál eins og ljósálfsins bál.
Uppfyllt þá er mín þrá
og til þarfa mitt starf.
4.
Ó, þú ljósálfa bál, að þér laðast mín sál.
Þú ert ljósdrottning mín, þegar sólskinið dvín.
Þegar önduð og stirð er á hausti þín hirð
og þín hátign er byrgð ertu í einrúmi syrgð.
Verði hróður og hljóð
þér til hróss, — drottning ljóss!