SöfnÍslenskaÍslenskaPersónuvernd:
Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn. |
Flokkar
Allt (3128)
Afmæliskvæði (14)
Annálskvæði (1)
Ádeilukveðskapur (1)
Ástarljóð (32)
Baráttukvæði (1)
Biblíuljóð (2)
Brúðkaupsljóð (9)
Bæjavísur (2)
Bænir (1)
Bænir og vers (25)
Eddukvæði (30)
Eftirmæli (41)
Ellikvæði (7)
Formannavísur (22)
Fræðsluljóð (3)
Gamankvæði (31)
Grýlukvæði (8)
Harmljóð (3)
Háðkvæði (4)
Hátíðaljóð (6)
Heilræði (10)
Heimsádeilur (8)
Helgikvæði (47)
Hestavísur (1)
Huggunarkvæði (2)
Hyllingarkvæði (2)
Jóðmæli (3)
Jólaljóð (5)
Kappakvæði (5)
Kvæði um biskupa (6)
Leppalúðakvæði (1)
Lífsspeki (5)
Ljóðabréf (18)
Matarvísur (1)
Náttúruljóð (52)
Rímur (204)
Sagnadansar (52)
Sagnakvæði (4)
Sálmar (417)
Sjóhrakningar (2)
Sorgarljóð (1)
Sónarljóð (14)
Særingar (1)
Söguljóð (13)
Tíðavísur (15)
Tregaljóð (6)
Vetrarkvæði (2)
Vikivakar (13)
Vögguljóð (5)
Ýkjukvæði (5)
Þjóðkvæði (1)
Þorrakvæði (4)
Þululjóð (5)
Þulur (2)
Ættjarðarkvæði (54)
Ævikvæði (6)
Ævintýrakvæði (3)
VordagurFyrsta ljóðlína:Hve skín, þar sem spornarðu flugstígu himna, þitt fax
Höfundur:Jón Helgason prófessor*
Viðm.ártal:≈ 0
1. Hve skín, þar sem spornarðu flugstígu himna, þitt fax,
ó fákur, sem glóbjartur dregur hið lýsandi hjól! æ hærra þú stefnir, unz allt það sem örbjarga kól er umvafið hlýju frá geislum hins vorlanga dags. 2. Hve vanmegna drúpir nú vetrarins hrímkalda sax,
hve vesalleg reynast um siðir hans pyndingatól, er óðfluga brunar um loftið hin signaða sól, við sigurför hennar þau sljóvgast og bráðna sem vax. 3. Lát streymast úr brunnum hjarta míns, ljóðsins lind,
i léttstígum kliði sem falli við þíðunnar söng! Þú aflþrota kvistur sem áður lást krepptur í þröng, rís upp til að seilast í bláhvolfsins ljós og vind! 4. Og reika þú, vordís, um hugar míns hallargöng!
ég heyri þitt skóhljóð og sé þina ljúfu mynd. |