Haustþankar 25. september 1969 | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Haustþankar 25. september 1969

Fyrsta ljóðlína:Miðstöðin hjá mér er biluð, má víst danka
bls.3
Viðm.ártal:≈ 0
Haustþankar 25. sept. 1969

1.
Miðstöðin hjá mér er biluð, má víst danka.
Hripa ég niður haustsins þanka.
2.
Sumarið var svalt og blautt og senn að líða,
vetri fyrir víst má kvíða.
3.
Áðan kom hér ökklasnjór í einu éli,
vildi tæmast vaspeli.
4.
Senn er liðinn september og sumar gengið,
fljótt er nú að fölna engið.
5.
Falla víða feitir sauðir, fara í pottinn,
birgðir vorar blessar drottinn.
6.
Streymir niður stóð af fjalli og stælir makka,
hrafnar yfir æti hlakka.
7.
Ellin gerir orka á mig en andinn hækkar,
dögum mínum drottinn fækkar.