Vegur þinn | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Vegur þinn

Fyrsta ljóðlína:Enginn hefur varðað veginn
Höfundur:Olav H. Hauge
bls.5. árg. bls. 28
Bragarháttur:Óháttbundið ljóð
Viðm.ártal:≈ 2000
Tímasetning:2007
Enginn hefur varðað veginn,
veginn sem þú skalt á
út í firrðlöndin
óþekkt – og blá.
Þú skalt ganga þennan veg
og þér við hlið
er enginn, og það er óráð
að ætla að snúa við.
Og ekki varðar þú heldur
veginn þinn.
Og vindurinn feykir förunum burt
um fjallveginn.