Hvar eru fuglar þeir á sumri sungu? | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Hvar eru fuglar þeir á sumri sungu?

Fyrsta ljóðlína:Hvar eru fuglar þeir á sumri sungu?
bls.55–56
Viðm.ártal:≈ 1875
1.
Hvar eru fuglar þeir á sumri sungu?
Þeir suður flugu brimótt yfir höf.
Hvar eru blómin sæl frá sumri ungu?
Und snjónum hvíla þau í vetrar gröf.
2.
Hvað er nú söngva? vindgnýr hærri og hærri
um fölnað land, en þung með drunuhljóð.
Þar þögull sjófugl þyrpist brimströnd nærri,
hinn þrúðgi gýmir kveður stirðan óð.
3.
Hvað er nú blóma? helblóm hörku viður,
sem hrímhvít skarta frosnum rúðum,
og geislablóm, sem glitar máni niður
á glerskyggð blásvell vetrarheiði frá.
4.
Nei! sönglíf blómlíf finnst nú aðeins inni,
þar andinn góður býr sér sumar til,
með söng og sögu, kærleik, vinakynni,
á kuldatíð við arinblossans yl.
5.
Svo dvelji söngfugl hver einn fyrir handan
og hylji fönnin blómið hvert sem dó.
Vér eigum sumar innra fyrir andann,
þá ytra herðir frost og kyngir snjó.