Morgunstundir í skógi | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Morgunstundir í skógi

Fyrsta ljóðlína:Eg geng mig einn út í gróandi lund
bls.196
Bragarháttur:Sex línur (tvíliður+) fer- og þríkvætt aaBccB
Viðm.ártal:≈ 1900
Tímasetning:1892
Flokkur:Náttúruljóð
1.
Eg geng mig einn út í gróandi lund
um glaðasta vorsins morgunstund
und álfröðuls árgeislum fránum,
og vongleði’ og lífsfjör í huga mér hlær
og hjartað í brjóstinu kviklega slær
er lifna laufin á trjánum.
2.
Eg geng mig einn út í laufgrænan lund
um ljúfasta sumar-morgunstund
und álfröðuls árgeislum fránum;
fyrir komandi dagstrit eg drekk í mig þrótt
úr daggsvölu lofti eftir svefnlitla nótt
er blakta blöðin á trjánum.
3.
Eg hvarfla út í skóginn um haust-morgunstund
með hjartað sært og með þunga lund
und álfröðuls árgeislum fránum;
þar lækning fær hjartað og lundin fró
í laufskrúðsins fegurð í glitrandi skóg
er blikna blöðin á trjánum.
4.
Og ef þér er heift eða harmur í lund
á haltu’ út í skóginn um morgunstund
und álfröðuls ylgeislum fránum;
þar baðar þig hreinn og himneskur blær
og hatrið og sorgina’ úr brjósti þér þvær
meðan blakta blöðin á trjánum.