Innskráning ritstjóra |
AAAA19
Metur dall og mjólkurskál
Metur dall og mjólkurskál músa- snjall við glímur. Kann að spjalla kisumál kötturinn Skallagrímur.
Athugagreinar
Tíkin Gáska og kötturinn Skallagrímur voru uppáhaldsdýr hjá Bergþóru
Tryggvadóttur í Ártúnum, ungri snót sem var döpur í bragði þegar
fjárbíllinn ók úr hlaði með sláturlömbin. Smiðurinn Jói í Stapa gladdi
Bergþóru með vísunum og þá fékk hún um annað að hugsa.
|