Ef geturðu ekki fyllt neinn flokk
Bls.XII
Skýringar
Jón Jónatansson sem var 2. þingmaður Árnesinga var á bændanámskeiði í
Þjórsártúni 1914. Hann þótti laus í flokki og var til rætt um það á
námskeiðinu. Árni Pálsson var á námskeiðinu, hélt fyrirlestur og kvað
vísuna um Jón.
Ef geturðu ekki fyllt neinn flokk
sú frétt mun ganga af þér:
Hann er eins og hjól í rokk
sem hringsnýst og kastar af sér.